Warning: Declaration of description_walker::start_el(&$output, $item, $depth, $args) should be compatible with Walker_Nav_Menu::start_el(&$output, $item, $depth = 0, $args = Array, $id = 0) in /home/forge/old.bioparadis.is/public/wp-content/themes/newscast/framework/classes/description_walker.php on line 43
St. Sig: Strigi og flauel

St. Sig: Strigi og flauel

Mar 01, 2013 Engin skoðun
  • Tegund og ár: Heimildamynd, 2013
  • Lengd: 60 mín.
  • Land: Ísland
  • Stjórnandi: Anna Þóra Steinþórsdóttir
  • Handrit: Anna Þóra Steinþórsdóttir og Þóra Sigríður Ingólfsdóttir
  • Kvikmyndataka: Arnar Þórisson, Anna Þóra Steinþórsdóttir, Hrafnhildur Gunnarsdóttir, Guðbergur Davíðsson
  • Tónlist: Tómas R. Einarsson o.fl.
  • 8 mm og 16 mm filmur: Guðmundur Guðmundsson, Tómas Zoega, o.fl.
  • Ljósmyndir: Guðmundur Guðmundsson, Oddur Ólaffson o.fl
  • Hljóðvinnsla: Jóhann Vignir Vilbergsson (Sagafilm)
  • Klipping: Anna Þóra Steinþórsdóttir
  • Grafísk hönnun: Arnar Líndal Halldórsson
  • Meðframleiðendur: Hrafhildur Gunnarsdóttir (Krummafilms) og Guðbergur Davíðsson (Ljósop)
  • Framleiðandi: Anna Þóra Steinþórsdóttir / Klipp ehf.
  • Dagskrá: Nýjar myndir
  • Sýnd frá: 6. mars 2013

EFNI: Myndin fjallar um ævi og störf listamannsins Steinþórs Sigurðssonar leikmyndahönnuðar og listmálara í nútíð og fortíð. Sagt er frá uppvaxtarárunum í Stykkishólmi, námsárunum í Svíþjóð og á Spáni og skyggnst inn í afar litríkan og áhugaverðan feril Steinþórs við leikmyndahönnun og málaralist en Steinþór er meðal merkustu abstraktmálara sinnar kynslóðar. Auk þess að sinna málaralistinni vann Steinþór hjá Leikfélagi Reykjavíkur í yfir 40 ár. Hann sat einnig í byggingarnefnd Borgarleikhússins og stýrði vali og hönnun á sviðsbúnaði þar. Að auki er í myndinni rætt við samferðarfólk hans, s.s. Svein Einarsson og Vigdísi Finnbogadóttur. Steinþór varð áttræður hinn 14. febrúar s.l. en hefur undanfarin ár unnið við uppsetningu á sýningum og safnaefni.

UMSÖGN: Höfundur myndarinnar er Anna Þóra, dóttir Steinþórs. Anna Þóra, sem hefur um árabil fengist við gerð heimildamynda og sjónvarpsþátta, fékk víða hvatningu til að gera þessa mynd en það sem réð úrslitum var samt að hennar sögn djúpstæð aðdáun lítillar stúlku á föður sínum. „Það var alltaf eitthvað heillandi við lyktina af terpentínu og olíumálningu á vinnustofu pabba þegar hann stóð fjarrænn og önnum kafinn við trönurnar. Það var líka dásamlegt að fá að fara með honum niður í Iðnó en þar var eitthvað allt annað í gangi. Þar lyktaði allt af svita og púðurfarða en þar var líka fullt af skemmtilegu og skapandi fólki. Mér fannst þetta heillandi heimur og þess vegna fannst mér líka áhugavert að kafa ofaní sögu pabba. Svo vissi ég líka að til væri hafsjór af frábæru efni eftir hann sem gaman væri að koma á framfæri.“

Sýning á verkum Steinþórs fyrir leikhús verður opnuð í Norska húsinu í Stykkishólmi í sumar en þau verk voru einnig sýnd í Iðnó veturinn 2011-2012.

Stklu myndarinnar má sjá hér.

Ísland
Engin skoðun á “St. Sig: Strigi og flauel”

Svara færslunni

You must be logged in to post a comment.