Warning: Declaration of description_walker::start_el(&$output, $item, $depth, $args) should be compatible with Walker_Nav_Menu::start_el(&$output, $item, $depth = 0, $args = Array, $id = 0) in /home/forge/old.bioparadis.is/public/wp-content/themes/newscast/framework/classes/description_walker.php on line 43
Svartir sunnudagar: Hard Boiled

Svartir sunnudagar: Hard Boiled

Mar 04, 2013 1 skoðun

 

417382_340732946038770_473769199_n

Hard Boiled

  • Tegund og ár: Leikin mynd, 1992
  • Lengd: 128 mín.
  • Land: Kína
  • Leikstjóri: John Woo
  • Aðalhlutverk: Yun-Fat Chow, Tony  Leung Chiu Wai
  • Sýnd: 17. mars 2013

Magnaður Hong Kong ópus meistara John Woo frá 1992. Hard Boiled var síðasta mynd hans áður en hann fór til Hollywood. Almennt eru menn á því að ris hans hafi náð hæstu hæðum með þessari mynd.

Svartir sunnudagar í Bíó Paradís

Sigurjón Kjartansson, Hugleikur Dagsson og Sjón standa fyrir Svörtum sunnudögum í Bíó Paradís. Páll Óskar Hjálmtýsson hefur ennfremur bæst í hópinn.

Þeir Hugleikur Dagsson, Páll Óskar Hjálmtýsson og Sigurjónarnir tveir, Kjartansson og Sigurðsson (Sjón) hafa stofnað cult og klassík hópinn Svarta sunnudaga, sem mun standa fyrir vikulegum kvikmyndasýningum í Bíó Paradís á sunnudagskvöldum í vetur. Fyrir þeim félögum vakir að auðga bíómenningu borgarinnar og njóta lífsgæðanna sem felast í því að klassískar cult myndir séu sýndar í reykvískum bíósal a.m.k. einu sinni í viku. Eftir mikla rekistefnu ákváðu þeir þremenningar að sunnudagskvöld væru bestu kvöldin fyrir svona nokkuð, enda hafa sunnudagskvöld fest sig í sessi í bíómenningu okkar sem aðal-bíókvöldin. Auk þess hefði verið kjánalegt að vera með sýningar t.d. á þriðjudögum undir nafninu Svartir sunnudagar.

 

Kína, Svartir sunnudagar

Ein skoðun to “Svartir sunnudagar: Hard Boiled”

  1. Hitchcock hátíð í Bíó Paradís | Nörd Norðursins says:

    […] að nálgast stiklur úr myndunum, en nánari upplýsingar um Hitchcock hátíðina má finna hér á heimasíðu Bíó […]

Svara færslunni

You must be logged in to post a comment.