Warning: Declaration of description_walker::start_el(&$output, $item, $depth, $args) should be compatible with Walker_Nav_Menu::start_el(&$output, $item, $depth = 0, $args = Array, $id = 0) in /home/forge/old.bioparadis.is/public/wp-content/themes/newscast/framework/classes/description_walker.php on line 43
Last Shop Standing

Last Shop Standing

Apr 08, 2013 Engin skoðun
  • Tegund og ár: Heimildamynd, 2012
  • Lengd: 50 mín.
  • Dagskrá: Lucky Records og Bíó Paradís
  • Sýnd: 18. apríl kl 20:00

Efni: Bíó Paradís og Lucky Records, í samvinnu við Pilsner Urquell, kynna Last Shop Standing: The Rise, Fall and Rebirth of the Independent Record Shop, geggjaða heimildamynd um vöxt, hnignun og upprisu óháðra plötubúða í Bretlandi.

Last Shop Standing er byggð á samnefndri bók eftir Graham Jones og fer í saumana á því hvers vegna plötubúðum í Bretlandi hefur fækkað um nærri tvö þúsund. Myndin segir frá örum vexti plötubúða á sjöunda, áttunda og níunda áratugi síðustu aldar, áhrifum vinsældalistanna, samningunum á bak við borðið, hnignun vínilsins og upprisu geisladisksins, auk nýrra tækni.

Hvað fór úrskeiðis? Hvers vegna voru þrjár plötubúðir að loka í hverri viku? Munu plötubúðir brátt heyra sögunni til með auknu niðurhali af netinu? Í Last Shop Standing heyrum við í eigendum rúmlega tuttugu plötubúða, leiðandi fólki í tónlistariðnaðnum auk tónlistarmanna á borð við Paul Weller, Johnny Marr, Norman Cook, Billy Bragg, Nerina Pallot, Richard Hawley og Clint Boon, sem segja okkur hvernig plötubúðir urðu og eru enn, stór þáttur í tónlistarlegu uppeldi þeirra, kærkomið athvarf sem gerði þeim kleift að uppgötva nýja tónlistarmenn og nýja tónlist.

Sýnd fimmtudagskvöldið 18. apríl kl. 20:00. Aðeins þessi eina sýning!

Að sýningu lokinni verður slegið upp allsherjar partýi þar sem heimsklassa DJ’ar munu halda uppi stuðinu langt fram á nótt og Pilsner Urquell verður á sérstöku tilboðsverði í sjoppunni. Lucky Records verður með brot af því besta úr búðinni til sölu fyrir og eftir sýningu til að svala vínylþorsta uppveðraðra vínylfíkla.

Miðaverð: 1.500 kr. – Ískaldur Pilsner Urquell fylgir miðanum. Miðasala á http://midi.is/bio/13/1265/

Dagskrá vikunnar, Kvikmyndir, Lucky Records, Uncategorized
Engin skoðun á “Last Shop Standing”

Svara færslunni

You must be logged in to post a comment.