Warning: Declaration of description_walker::start_el(&$output, $item, $depth, $args) should be compatible with Walker_Nav_Menu::start_el(&$output, $item, $depth = 0, $args = Array, $id = 0) in /home/forge/old.bioparadis.is/public/wp-content/themes/newscast/framework/classes/description_walker.php on line 43
Plakatasýning Svartra sunnudaga

Plakatasýning Svartra sunnudaga

Apr 29, 2013 Engin skoðun

Költ mynda hópurinn Svartir sunnudagar ætlar að kveðja veturinn með glæsibrag um næstu helgi, 4. og 5. maí í Bíó Paradís. Laugardaginn 4. maí verður opnuð yfirlitssýning veggspjalda sem hönnuð voru á liðnum vetri fyrir sýningar Svartra sunnudaga. Ýmsir listamenn lögðu hönd á plóginn, þar á meðal Ómar Örn Hauksson, Hugleikur Dagsson, Solveig Pálsdóttir, Þrándur Þórarinsson, Bobby Breiðholt, Sara Riel og margir fleiri. Hér er um að ræða sölusýningu og er hvert veggspjald sérprentað fyrir viðkiptavininn. Sýningin fer fram í anddyri Bíó Paradísar. Allir eru velkomnir á opnunina sem hefst klukkan 16:00. Sýningin mun standa frameftir vori.

Lokasýning Svartra sunnudaga fer fram sunnudagskvöldið 5. maí þar sem verða sýndar hvorki meira né minna en tvær myndir á einni sýningu sem hefst klukkan 20:00 í Bíó Paradís. Á þessari Bíó-tvennu verða sýndar myndirnar Jómfrúarvorið (Jomfrukällan/The Virgin Spring) eftir Ingmar Bergman frá árinu 1960 og The Last House on the Left eftir hryllingsmeistarann Wes Craven frá 1972. Þessi samsuða kann að virðast einkennileg við fyrstu sýn, en staðreyndin er sú að þessar tvær myndir byggja á sömu sögu, þ.e. seinni myndin er í raun endurgerð á þeirri fyrri, sem byggð er á gömlu sænsku miðaldarljóði.

Mynd Bergmans gerist í sænskri sveit á miðöldum og skartar meðal annara Max Von Sydow í aðalhlutverki. Hún segir frá ungri konu sem er nauðgað og myrt af flækingum sem síðan verða svo óheppnir að leita húsaskjóls á heimili syrgjandi foreldra fórnarlambsins.

Í The Last House on the Left færir Wes Craven þessa sögu til nútímans (1972) og óhætt er að segja að sagan sé öllu blóðugri í meðförum hrollvekjumeistarans. The Last House on the Left var frumraun Cravens, framleidd af öðrum hrollvekjumeistara, Sean S. Cunningham (Friday the 13th).

Sagan sem myndirnar tvær segja veltir upp spurningum um hefndina og siðferðislegt réttmæti hennar. Því skal lofað að áhorfendur koma ekki ósnortnir útaf þessum magnaða kvikmynda-kokteil Svartra sunnudaga.

Í kjölfar helgarinnar munu Svartir sunnudagar draga sig í hlé yfir sumartímann en áætla að koma tvíelfdir inn í Paradísina á komandi hausti með glæsilega dagskrá költ-mynda af öllum stærðum og gerðum. Aðstandendur Svartra sunnudaga, Hugleikur Dagsson, Páll Óskar Hjálmtýsson, Sigurjón Kjartansson og Sjón þakka öllum sem mætt hafa í vetur, enda hefur aðsóknin verið mjög góð á þær 30 myndir sem sýndar hafa verið undir merkjum hópsins.



579816_350912135020851_1395391925_n 481690_337075813071150_305215566_n 163535_354469764665088_1528469239_n Phantasmposter lítið

 

Dagskrá vikunnar, Fréttir/pistlar, Kvikmyndir, Svartir sunnudagar, Uncategorized
Engin skoðun á “Plakatasýning Svartra sunnudaga”

Svara færslunni

You must be logged in to post a comment.