Warning: Declaration of description_walker::start_el(&$output, $item, $depth, $args) should be compatible with Walker_Nav_Menu::start_el(&$output, $item, $depth = 0, $args = Array, $id = 0) in /home/forge/old.bioparadis.is/public/wp-content/themes/newscast/framework/classes/description_walker.php on line 43
Uppselt á frumsýningu Andra og Eddu

Uppselt á frumsýningu Andra og Eddu

Mar 21, 2014 Engin skoðun

Andri og Edda verða bestu vinir fékk frábærar móttökur á frumsýningu myndarinnar í dag. Uppselt var á myndina sem fjallar um vináttu Andra og Eddu og kúrudýrin þeirra, ljónsungann og fröken kanínu.

Slökkviliðið kemur við sögu í myndinni þar sem fröken kanína týnist í skoðunarferð þeirra félaga í myndinni. Slökkviliðið mætti því í Bíó Paradís að heilsa upp á félaga sína við mikinn fögnuð þó svo að sum börnin hafi viljað halda sig í ákveðinni fjarlægð.

Andri og Edda verða bestu vinir var talsett á íslensku í tilefni að kvikmyndahátíðinni og er kærkomin viðbót við kvikmyndamenningu barna í landinu. Þetta er mynd fyrir yngri börnin þriggja ára og eldri og því er um að gera að nota tækifærið og upplifa þessa frábæru fjölskyldumynd. Hér er hægt að kaupa miða á mida.is 

20140321-DSC_365120140321-DSC_365720140321-DSC_367320140321-DSC_3678

 

 

Börn í Bíó Paradís, Fréttir/pistlar, Kvikmyndir, Noregur
Engin skoðun á “Uppselt á frumsýningu Andra og Eddu”

Svara færslunni

You must be logged in to post a comment.