Umsóknarfrestur fyrir störf við Kvikmyndahátíð í Reykjavík 30. apríl
Kvikmyndahátíð í Reykjavík óskar eftir áhugasömu, metnaðarfullu og duglegu starfsfólki til að starfa við hátíðina í haust. Við leitum að fólki í eftirfarandi stöðugildi:
Framleiðandi Kvikmyndahátíðar í Reykjavík
Starfið felur í sér að sjá um um framkvæmd, verkstjórnun og yfirumsjón með viðburðum hátíðarinnar. Nauðsynlegt er að umsækjandi hafi reynslu og áhuga á markaðsmálum og fjármögnun menningarviðburða.
Kynningar- og markaðsstjóri Kvikmyndahátíðar í Reykjavík
Starfið felur í sér umsjón með kynningarmálum hátíðarinnar. Viðkomandi þarf að vera vel talandi og skrifandi á íslensku og ensku og æskilegt er að hafa reynslu af blaða- og fréttamennsku.
Gestastjóri Kvikmyndahátíðar í Reykjavík
Starfið felur í sér umsjón innlendra- og erlendra gesta hátíðarinnar ásamt því að gestastjóri hefur yfirumsjón með móttöku erlendra blaðamanna og tekur þátt í skipulagningu og útfærslu kynningarmessu hátíðarinnar.
Við leitum að fólki sem getur unnið sjálfstætt, sýnir fram á frumkvæði og hefur brennandi áhuga á skapandi umhverfi kvikmyndahátíðar. Umsóknir um ofantalin störf sendist á jobs@reykjavikfilmfest.is ásamt ferilskrá. Umsóknarfrestur er til og með 30. apríl.