Forsala armbanda á Skjaldborg- Hátíð íslenskra heimildamynda
Frá og með morgundeginum, 28. maí verður hægt að kaupa armbönd í forsölu í Bíó Paradís. Forsöluprís eru nettar 3000 íslenskar! Það margborgar sig að fjárfesta í armbandi, eins og sjá hér, þ.e. smelltu á hlekkinn! Þannig fæst öll skemmtunin fyrir tæplega helming af uppsettu verði. Það höldum við nú!
Dagana 6. – 9. júní verður Skjaldborg – hátíð íslenskra heimildamynda haldin í áttunda sinn á Patreksfirði. Auk þess að frumsýna nýjar íslenskar heimildamyndir er hátíðinni ætlað að vera tækifæri fyrir kvikmyndagerðarfólk og áhugamenn um heimildamyndir til að koma saman. Í lok hátíðarinnar verður besta heimildamyndin á Skjaldborg 2014 valin af áhorfendum. Heimasíða Skjaldborg Facebook síða Skjaldborg