Óli Dóri ráðinn rekstrarstjóri Bíó Paradís
Bíó Paradís hefur nú ráðið rekstrarstjóra, hann Ólaf Halldór Ólafsson sem ávallt er kallaður Óli Dóri. Hann hefur bæði lokið meistaranámi í Blaða og fréttamennsku frá Háskóla Íslands og Hagnýtri menningarmiðlun frá sömu stofnun. Hann hefur starfað við dagskrágerð í útvarpi frá árinu 2006 og sér um hinn vikulega þátt Straum á X-inu 977. Samhliða því er hann ritstjóri tónlistarsíðunnar straum.is sem sérhæfir sig í alhliða tónlistarumfjöllun auk þess sem hann hefur starfað sem plötusnúður um ára bil. Hann hefur einnig mikla reynslu af tónleikahaldi og öðru viðburðarhaldi og hefur unnið mikið með samskiptamiðla. Við bjóðum Óla Dóra velkominn til starfa!