ARNARHREIÐRIÐ: Mínus!
Kvikmyndaklúbburinn Arnarhreiðrið hefur starfsemi sína miðvikudaginn 10. nóvember kl. 20:30 í Bíó Paradís. Sýndar verða hverskyns “költmyndir”, innlendar sem erlendar. Örninn kemur til byggða einu sinni í mánuði í vetur. Umsjónarmaður er Grímur Þórðarson kvikmyndagerðarmaður.
Allir eru velkomnir á sýningar, miðaverð aðeins 1000 krónur.
Mínus
- Tegund og ár: Heimildamynd, 2003
- Lengd: 95 mín.
- Land: Ísland
- Stjórnandi: Frosti Jón Runólfsson
- Framleiðandi: Haraldur Sigurjónsson
- Kvikmyndataka: Frosti Jón Runólfsson og Haraldur Sigurjónsson
- Klipping: Marteinn Einarsson, Steindór Gunnar Steindórsson
EFNI: Rakin er saga hljómsveitarinnar Mínus og henni fylgt eftir í gegn um súrt og sætt á árunum 1999 til 2003.
UMSÖGN: Myndin taldist of gróf til útgáfu þannig að þetta er aðeins í þriðja skipti sem hún er sýnd almenningi.
- DAGSKRÁ: Arnarhreiðrið
- SÝND: 10. nóvember kl. 20:30