Haustbíódagar 2010: Sjö heitustu heimildamyndir ársins
Græna ljósið slær enn og aftur upp mikilli kvikmyndaveislu í Bíó Paradís. Sjö heitustu heimildarmyndir ársins verða sýndar frá 12. nóvember og opnunarmyndin er Feathered Cocaine, ný íslensk heimildamynd sem hefur vakið heimsathygli.
Fiðruð fíkn (Feathered Cocaine)
- Tegund og ár: Heimildamynd, 2010
- Lengd: 79 mín.
- Land: Ísland
- Stjórnendur: Þorkell S. Harðarson, Örn Marinó Arnarson
EFNI: Olíufurstarnir í Persaflóanum eru helteknir af veiðifálkum og borga allt að einni milljón dollara fyrir góðan fugl. En það eru fleiri en olíufurstarnir sem stunda fálkaveiðar: Osama Bin Laden er heltekinn fálkaveiðimaður og notar fálkana til fjármögnunar Al-Qaeda. Fiðruð fíkn skyggnist inn í lokaðan heim sem örfáir aðilar í veröldinni hafa haft aðgang að. Umhverfisvernd, heimspólitík og hryðjuverk fléttast saman í þessari ótrúlegu sögu.
UMSÖGN: Þorkell og Örn Marinó hafa unnið að þessari mynd árum saman og ferðast víða um heim. Myndin var frumsýnd á Tribeca kvikmyndahátíðinni í New York í vor og fór í kjölfarið á Hot Docs heimildamyndahátíðina í Toronto. Hún vakti mikla athygli á báðum stöðum og hefur hlotið umtalsverða umfjöllun fjölmiðla.
- DAGSKRÁ: Haustbíódagar Græna ljóssins 2010
- SÝND FRÁ: 12. nóvember
Inside Job
- Tegund og ár: Heimildamynd, 2010
- Lengd: 120 mín.
- Land: Bandaríkin
- Stjórnandi: Charles Ferguson
Efni: Inside Job fjallar á ítarlegan hátt um efnahagshrunið árið 2008, sem kostaði meira en 20 trilljónir Bandaríkjadala og olli því að milljónir manna misstu vinnuna og heimili sín í verstu niðursveiflu í efnahagskerfi heimsins síðan kreppan mikla reið yfir á þriðja áratug síðustu aldar. Myndin er byggð á ítarlegum rannsóknum og viðtölum við aðila úr lykilstöðum í fjármálalífi, stjórnmálalífi, fjölmiðlum og háskólum heimsins. Hún var tekin upp á Íslandi, í Bandaríkjunum, Englandi, Frakklandi, Singapúr og Kína.
Umsögn: Inside Job er einhver umtalaðasta mynd ársins og hefur hlotið einróma lof gagnrýnenda. Meðal þess sem sérstaklega er tekið fyrir í myndinni er íslenska efnahagshrunið.
- DAGSKRÁ: Haustbíódagar Græna ljóssins 2010
- SÝND FRÁ: 12. nóvember
Armadillo
- Tegund og ár: Heimildamynd, 2010
- Lengd: 100 mín.
- Land: Danmörk, Svíþjóð
- Stjórnandi: Janus Metz Pedersen
Efni: Armadillo fjallar um stríðið í Afganistan með algjörlega nýjum hætti. Myndin var frumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Cannes nú í vor og vakti strax mjög hörð viðbrögð. Í myndinni fylgir leikstjórinn Janus Metz dönsku hermönnunum, Mads og Daniel, um Helmand-héraðið. Þeir hafa bækistöðvar í herstöðinni Armadillo þar sem hart er barist við liðsmenn Talibana. Smátt og smátt láta Mads og Daniel stríðið ná tökum á sér og í kjölfarið framkvæma þeir hluti sem vakið hafa hneykslun í Danmörku, bæði meðal almennings og háttsettra embættis- og stjórnmálamanna.
Umsögn: Þessi verðlaunamynd frá síðustu Cannes hátíð hefur fengið gríðarlega aðsókn í Danmörku.
- DAGSKRÁ: Haustbíódagar Græna ljóssins 2010
- SÝND FRÁ: 12. nóvember
GasLand
- Tegund og ár: Heimildamynd, 2010
- Lengd: 107 mín.
- Land: Bandaríkin
- Stjórnandi: Josh Fox
Efni: GasLand fjallar um það hvernig olíuiðnaðurinn í Bandaríkjunum hefur lagt heilu þorpin í rúst og eyðilagt vatnsból þúsunda manna með borunum eftir gasi undanfarin ár. Stjórnandinn, Josh Fox, fór víða um Bandaríkin til að skoða hvernig gasborunum væri háttað og hitti fyrir fólk sem þjakað er af heilsufarsvandamálum vegna mengunar vatnsbóla af völdum slíkra borana. Í sumum tilfellum gat fólk kveikt í drykkjarvatni sínu! Fox fór einnig til Washington og ræddi við þingmenn og fólk í stjórnkerfinu um þetta eldfima mál.
Umsögn: Myndin hlaut verðlaun dómnefndar á síðustu Sundance hátíð og hefur að auki hlotið mörg önnur verðlaun. Hún er um þessar mundir sýnd á kvikmyndahátíðum víðsvegar um heim.
- DAGSKRÁ: Haustbíódagar Græna ljóssins 2010
- SÝND FRÁ: 12. nóvember
Freakonomics
- Tegund og ár: Heimildamynd, 2010
- Lengd: 85 mín.
- Land: Bandaríkin
- Stjórnendur: Heidi Ewing, Alex Gibney, Seth Gordon, Rachel Grady, Eugene Jarecki, Morgan Spurlock
Efni: Byggð á samnefndri metsölubók þar sem mannlífið er skoðað í óvenjulegu ljósi út frá sjónarhorni hagfræðinnar.
Umsögn: Sex af frumlegustu stjórnendum heimildamynda í heiminum sameinast hér í að koma einni vinsælustu bók síðari ára upp á hvíta tjaldið. Hver leikstjóri tekur að sér sinn uppáhaldskafla úr bókinni en þeir eiga að baki eftirfarandi snilldarmyndir: Super Size Me, Jesus Camp, Enron: The Smartest Guys in the Room, Why We Fight, The King of Kong.
- DAGSKRÁ: Haustbíódagar Græna ljóssins 2010
- SÝND FRÁ: 12. nóvember
I’m Still Here: The Lost Years of Joaquin Phoenix
- Tegund og ár: Heimildamynd, 2010
- Lengd: 108 mín.
- Land: Bandaríkin
- Stjórnandi: Casey Affleck
Efni: Heimildarmyndin I’m Still Here: The Lost Year of Joaquin Phoenix fjallar um árið 2009 í lífi leikarans Joaquins Phoenix. Þetta var árið þar sem hann hætti að leika og gerðist rappari. Þetta var árið þar sem hann virtist hafa misst vitið! Flestir telja að um eitt stórt grín sé að ræða, en þeir sem hafa séð myndina klóra sér í hausnum þar sem myndin er svo gróf að margir efast um að nokkur maður myndi grínast með það sem kemur fram í myndinni.
- DAGSKRÁ: Haustbíódagar Græna ljóssins 2010
- SÝND FRÁ: 12. nóvember