Warning: Declaration of description_walker::start_el(&$output, $item, $depth, $args) should be compatible with Walker_Nav_Menu::start_el(&$output, $item, $depth = 0, $args = Array, $id = 0) in /home/forge/old.bioparadis.is/public/wp-content/themes/newscast/framework/classes/description_walker.php on line 43
Ástarstjarna (Bright Star)

Ástarstjarna (Bright Star)

Nov 17, 2010 Engin skoðun
  • Tegund og ár: Leikin mynd, 2009
  • Lengd: 118 mín.
  • Land: Ástralía/Bretland/Frakkland
  • Leikstjóri: Jane Campion
  • Aðalhlutverk: Ben Whishaw, Abbie Cornish, Paul Schneider, Kerry Fox, Thomas Sangster
  • Dagskrá: Nýjar myndir
  • Sýnd aftur frá: 3.-9. desember

EFNI: Hin sannsögulega Ástarstjarna (Bright Star) gerist árið 1818 í London. Segir myndin frá ljóðskáldinu John Keats (Ben Whishaw) og sambandi hans við stúlkuna úr næsta húsi, hina fögru Fanny Brawne. Fanny hefur meiri áhuga á tískufatnaði en ljóðlist og því eru fyrstu kynni þeirra stirð í meira lagi, en þegar yngri bróðir Johns verður veikur og Fanny býðst til að hjálpa þeim, kynnir hann hana fyrir ljóðlist sinni og þau verða brátt yfir sig ástfangin hvort af öðru. Þegar ofverndandi móðir Fanny og besti vinur Johns komast að raun um sambandið er of seint fyrir þau að stöðva þá braut sem það er komið á. Þau eru gagntekin hvort af öðru og svífa á rósbleiku skýi ástarinnar, en það líður ekki á löngu þar til vandræðin fara að gera vart við sig í lífi þeirra beggja…

UMSÖGN: Heiti myndarinnar er vísun í eina af sonnettum Keats sem hann skrifaði þegar hann var með Fanny Brawne: “Bright star, would I were stedfast as thou art“. Íslenskt heiti er sömuleiðis vísun í kvæði Jónasar Hallgrímssonar Ferðalok. Myndin hefur hlotið fjölda verðlauna og tilnefninga.

Kvikmyndir
Engin skoðun á “Ástarstjarna (Bright Star)”

Svara færslunni

You must be logged in to post a comment.