Deus ex cinema: Vampyr (1932)
- Tegund og ár: Leikin mynd, 1932
- Lengd: 75 mín.
- Land: Frakkland/Þýskaland
- Leikstjóri: Carl Th. Dreyer
- Aðalhlutverk: Julian West, Maurice Schutz, Rena Mandel
- Dagskrá: Deus ex cinema
- Sýnd: 7. desember kl. 20:20
EFNI: Allen Grey, ungur ferðalangur, kemur að afskekktum kastala og upplifir einkennilega hluti; (mann hvers skuggi virðist lifa sjálfstæðu lífi, mann með ljá sem hringir bjöllu í sífellu, hræðilegan draum um eigin jarðarför). Skelfilegir og yfirnáttúrulegir atburðir virðast í uppsiglingu…
UMSÖGN: Vampyr eftir hinn fræga danska leikstjóra Carl Theodor Dreyer var fyrsta talmynd hans, en ber að mörgu leyti skýr einkenni þöglu myndanna. Henni var upphaflega mætt af fálæti en hefur í tímans rás fengið uppreisn æru sem ein sérkennilegasta mynd þessa meistara kvikmyndanna.