Dráparinn innra (The Killer Inside Me)
- Tegund og ár: Leikin mynd, 2010
- Lengd: 109 mín.
- Land: Bandaríkin/Bretland
- Leikstjóri: Michael Winterbottom
- Aðalhlutverk: Casey Affleck, Kate Hudson og Jessica Alba
- Dagskrá: Nýjar myndir
- Sýnd frá: 17. desember
EFNI: Aðstoðarlögreglustjórinn Lou Ford (Casey Affleck) er sverð og skjöldur síns heimabæjar í Texas, þolinmóður, traustur og umhyggjusamur að virðist. Enginn veit hinsvegar leyndarmál hans, það sem hann kallar “veiki” sína. Ford er ofbeldismaður, í raun skrímsli í mannsmynd sem nýtur þess að nauðga og myrða. Fyrir mörgum árum var honum næstum stungið inn en fósturbróðir hans tók á sig sökina. Nú gera “veikindin” vart við sig að nýju eftir langt hlé og afleiðingarnar eru hrikalegar og hörmulegar.
UMSÖGN: Byggt á samnefndri skáldsögu Jim Thompson. Myndin er afar ofbeldisfull og alls ekki fyrir viðkvæma. Hún hefur verið geysilega umdeild síðan hún var frumsýnd á Sundance hátíðinni síðustu.