Lykillinn undir mottunni (The Apartment)
- Tegund og ár: Leikin mynd, 1960
- Lengd: 125 mín.
- Land: Bandaríkin (án texta)
- Leikstjóri: Billy Wilder
- Aðalhlutverk: Jack Lemmon, Shirley MacLaine og Fred MacMurray
- Dagskrá: Jólamynd 2010
- Sýnd frá: 26.-30. desember (sjá nánar í dagskrá dagsins á forsíðu og dagskrá vikunnar)
EFNI: Ungur maður á uppleið í fyrirtæki sínu reynir að hraða för sinni upp metorðastigann með því að lána yfirmönnunum íbúð sína til ástarævintýra. Málin flækjast þegar hann verður ástfanginn af viðhaldi forstjórans.
UMSÖGN: Ein af helstu myndum bandarískrar kvikmyndasögu. Hlaut Óskarsverðlaunin sem besta myndin, fyrir leikstjórn og handrit ofl. Reglulegur gestur á listum yfir bestu myndir allra tíma. Sjá grein Graham Fuller í The New York Times um myndina hér.