Súðbyrðingur – saga báts
- Tegund og ár: Heimildamynd, 2010
- Lengd: 57 mín.
- Land: Ísland
- Stjórnandi: Ásdís Thoroddsen
- Framleiðandi: Gjóla ehf.; Ásdís Thoroddsen, Fahad Falur Jabali
- Handrit: Ásdís Thoroddsen
- Klipping: Ásdís Thoroddsen
- Klippiráðgjöf: Elísabet Ólafía Ronaldsdóttir
- Tónskáld: Þórður Magnússon
- Hljóðvinnsla: Gunnar Árnason
- Myndvinnsla: Steinþór Birgisson
- Dagskrá: Nýjar myndir
- Sýnd frá: 22. janúar 2011
EFNI: Fjórir menn ákveða að smíða eftir staðarskektunni ,,Björg”, bát sem hafði fúnað í grasi í Reykhólasveit. Smíð þessa báts er leiðarhnoð í frásögn af þróun súðbyrðingsins á Norðurlöndum. Haffærni þessara skipa ásamt kunnáttu í siglingum gerðu norrænum mönnum kleift að halda upp fljót Rússlands, sem og vestur um Miðjarðarhafið, hvort sem var til verslunar, rána, eða landkönnunar. En í daglegu amstri hafa ýmsar gerðir þróast af bátnum, bæði í Eystrasalti og við strendur Norður-Atlantshafs. Hefur hann mótast eftir aðstæðum á hverjum stað. Báturinn er trúarlegt tákn. Í þessum ,,báti” sem kvikmyndin er, rúmast margt, svo sem handbragð, heiðindómur, verslunarsaga, veiði, dauði og hátíðir. Í gegnum báta og skip tengjast hættir og saga þeirra þjóða sem búa á Norðurlöndum.