POWELL OG PRESSBURGER MÁNUÐUR: I Know Where I’m Going (Ég veit hvert ég er að fara)
- Tegund og ár: Leikin mynd, 1945
- Lengd: 91 mín.
- Land: Bretland
- Texti: Nei (á ensku)
- Leikstjóri: Michael Powell
- Handrit: Emeric Pressburger og Michael Powell
- Aðalhlutverk: Wendy Hiller, Roger Livesey og Pamela Brown
- Dagskrá: Powell og Pressburger mánuður
- Sýnd:18.-20. febrúar 2011
EFNI: Joan Webster hefur verið staðráðin í að ná langt í lífinu síðan í æsku. Myndin hefst á því að hún tilkynnir föður sínum að hún sé að fara að giftast auðjöfrinum Robert Bellinger sem heldur til á Kiloran eyju sem er hluti af Suðureyjum undan strönd Skotlands. Hún heldur síðan á vit síns verðandi eiginmanns en verður strandaglópur á leiðinni vegna veðurs á eyjunni Mull. Þar kynnist hún ævintýramanninum Torquil McNeil og málin taka heldur betur að vandast.
UMSÖGN: I Know Where I’m Going er sennilega einhver mest heillandi kvikmynd sem Bretar hafa gert. Full af látlausri kímni, ómótstæðilegum sjarma, hjátrú, gömlum sögnum og hæfilegum skammti af rómantík þar sem helstu persónur, samfélagið og umhverfið renna saman í unaðslega heild. Kvikmyndagerðin sjálf er svo kapítuli útaf fyrir sig! Sjón er sögu ríkari.