MAX OPHULS MÁNUÐUR: Letter From an Unknown Woman (Bréf frá ókunnri konu)
- Tegund og ár: Leikin mynd, 1948
- Lengd: 86 mín.
- Land: Bandaríkin
- Texti: (á ensku)
- Leikstjóri: Max Ophüls
- Aðalhlutverk: Joan Fontaine, Louis Jordan
- Dagskrá: Max Ophüls mánuður
- Sýnd: 23.-26. apríl 2011
EFNI: “Þegar þú lest þetta bréf verð ég líklega dáin.” Svona hefst bréfið sem glaumgosi nokkur (Jordan) finnur á hótelherbergi sínu kvöld eitt í Vín um aldamótin þarsíðustu. Hann hefur komið sér í vandræði, þarf að heyja einvígi við móðgaðan eiginmann í bítið en hyggst flýja. Bréfið tefur brottför hans, forvitni hans er vakin. Innihald þess er frásögn um ástarævintýri sem hann man ekki eftir. Það er frá ungri konu (Fontaine) í borginni sem hefur verið hugfangin af glaumgosanum allt frá unglingsárum. Einni kvöldstund eyddi hún í örmum hans og það var hápunktur lífs hennar. Fyrir glaumgosanum var hún hinsvegar aðeins enn ein hjásvæfan sem átti leið um svefnherbergi hans.
UMSÖGN: Letter From an Unknown Woman hefur verið kölluð móðir allra fjögurra vasaklúta mynda, þetta er sætbeisk saga um óendurgoldna og glataða ást og almennt talin hápunkturinn á ferli Ophüls í Hollywood.