Uppskeruhátíð Kvikmyndaskóla Íslands
Nemendur Kvikmyndaskóla Íslands sýna lokaverkefni vorannar dagana 17.-21. maí.
Það ríkir eftirvænting í loftinu í Bíó Paradís þessa daga. Sýnd eru lokaverkefni annarinnar, sameiginleg verkefni og að sjálfsögðu útskriftarverkefni nema á öllum brautum. Hátt í hundrað kvikmyndaverk á fimm dögum. Sýningar hefjast um hádegisbil og standa fram á kvöld. Andrúmsloftið er þrungið spennu og eftirvæntingu og jafnvel má merkja spennufall. Útskriftarhátíð með tilheyrandi viðurkenningum er laugardaginn 21. maí kl. 13.
Sýningarnar eru ókeypis og öllum opnar. Frábært tækifæri til að kíkja á græðlingana í íslenskri kvikmyndagerð.
DAGSKRÁ:
17. maí
13:00 – Leikstjórn/Framleiðsla (1., 2. og 3. önn)
20:00 – Leikstjórn/Framleiðsla (4. önn – útskriftarmyndir)
18. maí
13:00 – Skapandi tækni (1., 2. og 3. önn)
20:00 – Skapandi tækni (4. önn – útskriftarmyndir)
19. maí
13:00 – Handrit/Leikstjórn (1., 2. og 3. önn)
20:00 – Handrit/Leikstjórn (4. önn – útskriftarmyndir)
20. maí
13:00 – Leiklist (1., 2. og 3. önn)
20:00 – Leiklist (4. önn – útskriftarmyndir)
21. maí
13:00 – Útskrift