AUSTUR-EVRÓPSKAR STRÍÐSMYNDIR: Come and See (Farið og sjáið)
- TEGUND OG ÁR: Leikin mynd, 1985
- LENGD: 136 mín.
- LAND: Rússland
- TEXTI: Enskur
- LEIKSTJÓRI: Elem Klimov
- AÐALHLUTVERK: Aleksey Kravchenko, Olga Mironova og Liubomiras Lauciavicius
- DAGSKRÁ: Austur-Evrópskar stríðsmyndir
- SÝND: 27.-29. maí
EFNI: Ungur drengur neyðist til að berjast með andspyrnuhreyfingunni í Hvíta-Rússlandi gegn ofurafli hins miskunnarlausa þýska innrásarhers. Eftir að drengurinn verður vitni að hörmungum og hryllingi seinni heimsstyrjaldarinnar tapar hann sakleysi sínu og í kjölfarið vitinu.
UMSÖGN: Farið og sjáið er almennt talin ein magnaðasta stríðsmynd sem gerð hefur verið. Hún situr í 24. sæti á lista Empire yfir 100 bestu myndir allra tíma á öðru tungumáli en ensku.