Iceland Airwaves dagar 12.-16. október
Iceland Airwaves opnar útibú í Bíó Paradís dagana sem hátíðin stendur yfir. Við sýnum kl. 16:00 hvern dag ýmsar tónlistarmyndir, bæði nýjar erlendar og eldri, auk þess sem tónlistaruppákomur verða í forsal frá kl. 14:00.
Myndirnar eru:
Backyard eftir Árna Sveinsson, um tónlistarsenuna í Reykjavík þessi misserin; Rokk í Reykjavík, hin goðsagnakennda mynd Friðriks Þórs Friðrikssonar um pönkárin; Gargandi snilld eftir Ara Alexander um íslenska tónlistarævintýrið á nýliðnum áratug, Popp í Reykjavík eftir Ágúst Jakobsson um músiksenuna undir lok síðustu aldar, The Weird Girls Project – Episode 13 þar sem Kitty von Sometime og hennar fólk performerar í Þórsmörk og við Seljalandsfoss kringum tónlist Imogen Heap, Love the Earth og síðast en ekki síst Everything, Everywhere, All the time eftir Pierre-Alain Giraud, um Bedroom Community og tónleikaför þeirra, The Whale Watching Tour, um Evrópu á síðasta ári.
Dagskrá:
- MIÐ. 12.10
- FIM. 13.10
- FÖS. 14.10
- LAU. 15.10
- SUN. 16.10