Warning: Declaration of description_walker::start_el(&$output, $item, $depth, $args) should be compatible with Walker_Nav_Menu::start_el(&$output, $item, $depth = 0, $args = Array, $id = 0) in /home/forge/old.bioparadis.is/public/wp-content/themes/newscast/framework/classes/description_walker.php on line 43
MÁNUÐUR MEISTARANS/Alejandro Jodorowsky: The Holy Mountain

MÁNUÐUR MEISTARANS/Alejandro Jodorowsky: The Holy Mountain

Oct 18, 2011 Engin skoðun

Mánuður meistarans:

Mánuður meistarans er nýr liður á dagskránni okkar. Hver mánuður frá október til apríl verður helgaður tilteknum leikstjóra og verða fjórar myndir viðkomandi sýndar, hver þrisvar um hverja helgi.

Alejandro Jodorowsky:

Alejandro Jodorowsky er fæddur 1929 í Chile.  Hann er hylltur um veröld víða fyrir afar sérstæðar myndir sínar sem eru uppfullar af súrrealísku ofbeldi og sérkennilegri blöndu mystíkur og trúarlegra ögrana. Verk hans hafa hlotið takmarkaða dreifingu en notið vinsælda í hverskyns jaðarkreðsum. Sjálfur nefnir hann Fellini sem sinn helsta áhrifavald meðan listamenn á borð við Marilyn Manson og David Lynch hafa sótt innblástur til hans. Jodorowsky hefur ekki verið mjög pródúktívur sem kvikmyndagerðarmaður hin seinni ár, en hann starfar einnig sem leikskáld og sviðsleikstjóri í Mexíkó. Hann stefnir þó að því að filma framhald af El Topo á næsta ári og kallast verkið Abel Cain.

THE HOLY MOUNTAIN

  • 1973/114 MÍN.
  • SÝND: 21.-23. OKTÓBER

EFNI: Kristgervingur lendir í afar einkennilegum upplifunum í leit sinni að fjallinu helga, þar sem ætlunin er að kasta frá sér öllum jarðneskum eigum, fjarlægja guðina sem þar búa og öðlast þannig eilíft líf.

UMSÖGN: Í kjölfar mikillar velgengni El Topo lögðu John Lennon og Yoko Ono fram hluta af framleiðslufé þessarar myndar. Afar sýrukennd með hverskyns andlegum og trúarlegum vísunum.

Kvikmyndir
Engin skoðun á “MÁNUÐUR MEISTARANS/Alejandro Jodorowsky: The Holy Mountain”

Svara færslunni

You must be logged in to post a comment.