Warning: Declaration of description_walker::start_el(&$output, $item, $depth, $args) should be compatible with Walker_Nav_Menu::start_el(&$output, $item, $depth = 0, $args = Array, $id = 0) in /home/forge/old.bioparadis.is/public/wp-content/themes/newscast/framework/classes/description_walker.php on line 43
(Ó)sýnileg – kvikmyndadagar Amnesty International

(Ó)sýnileg – kvikmyndadagar Amnesty International

Oct 24, 2011 Engin skoðun

Amnesty International, í samstarfi við Bíó Paradís, stendur fyrir kvikmyndadögum dagana 3.-13. nóvember undir heitinu (Ó)sýnileg. Yfirskrift kvikmyndadaganna vísar í starf samtakanna síðustu fimmtíu ár. Félagar í samtökunum neita að líta undan og krefjast þess að mannréttindabrot séu gerð sýnileg en ekki reynt að fela þau.

Áhorfendum kvikmyndadaga er boðið í ferðalag, ferðalag sem leiðir þá til allra heimshorna og veitir innsýn í líf og aðstæður fólks. Sýndar verða tólf ólíkar myndir sem allar hafa unnið til alþjóðlegra verðlauna, hver með sína nálgun á viðfangsefnið.

Myndmál er miðlægt í lífi okkar allra í dag og myndir notaðar til að sýna og túlka raunveruleikann. Sú áskorun sem tekist er á við lýtur að því hvernig hægt sé að sýna fólki, sem býr fjarri þeim stöðum þar sem mannréttindabrot eiga sér stað, raunveruleika þeirra brota og um leið að fá fólk til að taka afstöðu gegn brotunum og grípa til aðgerða til að stöðva þau. Reynt er að varpa ljósi á aðstæður í daglegu lífi og umhverfi fólks og áhrif aðgerða og/eða aðgerðaleysis yfirvalda og annarra á líf þess. Aðdráttarafl heimildarmynda byggir ekki síst á því að myndefnið gefur tilvísun í líf utan myndanna og tækifæri til samskipta þvert á öll landamæri. Heimildarmyndir fela í sér tilraun til að ljá hinum ósýnilegu rödd.

Að ferðalaginu loknu höfum við kynnst fólki sem þrátt fyrir oft erfiðar aðstæður heldur áfram að krefjast réttar síns til að lifa með reisn.

Framleiðandi myndarinnar, Travel Advice for Syria, Peter Löfgren verður heiðursgestur hátíðarinnar. Hann verður viðstaddur sýningu myndarinnar þann  8. nóvember og svarar spurningum kvikmyndagesta að lokinni sýningu.

__________________________________________________________________________________

Yfirlit yfir myndir kvikmyndadaga Amnesty International

Sýningar eru alla dagana kl. 20:00.

3. nóvember:

  • The Green Wave byggir á Twitter- og bloggfærslum frá Íran í aðdraganda og í kjölfar kosninganna árið 2009, við fáum innsýn í atburðina í gegnum sögu ungs stúdents.

4. nóvember:

  • Sisters in Law flytur okkur til Kamerún þar sem við kynnumst systrum sem báðar starfa sem lögfræðingar og fylgjumst með starfi þeirra í þágu kvenna og barna.

5. nóvember:

  • An Independent Mind er tekist á við tjáningarfrelsið, kynntar eru sögur fólks frá ólíkum löndum sem hvert á sinn hátt nýtir þennan grundvallarrétt andspænis ógnandi valdi.

6. nóvember:

  • The Devil Operation er mynd sem á mjög áhrifamikinn hátt segir frá áhrifum námavinnslu á líf bænda í Perú og hvernig námafyrirtæki skirrast ekki við að ógna íbúum.

7. nóvember:

  • Pink Saris kynnir baráttu konu gegn ofbeldi og erfðastéttakerfinu á Indlandi.

8. nóvember:

  • Travel Advice for Syria veitir einstaka innsýn í sýrlenskt samfélag í aðdraganda uppreisnarinnar. Peter Lofgren framleiðandi myndarinnar verður viðstaddur sýninguna og ræðir við gesti á eftir.

9. nóvember:

  • Nero´s Guests fylgjumst við með blaðamanni sem skrifar um fátækt og sjálfsmorðsfaraldur meðal indverskra bænda.

10. nóvember:

  • Silent Snow segir frá ungum Grænlendingi sem leitar orsaka þeirrar mengunar sem ógnar samfélagi inúita.

11. nóvember:

  • Budrus kynnumst við tilraunum Palestínumanns til að leiða saman ólíka hópa í friðsamlegri baráttu gegn aðskilnaðarmúrnum sem ógnar afkomu íbúa þorpsins Budrus.

12. nóvember:

  • Nowhere in Europe færir okkur sögu fjögurra flóttamanna frá Tsjetsjeníu. Við kynnumst þeim hindrunum sem flóttafólk stendur frammi fyrir í leit sinni að griðastað.

13. nóvember:

  • The Jungle Radio leiðir okkur til Níkaragva þar sem við fylgjumst með lífi konu sem rekur útvarpsstöðina Raddir kvenna.
  • The Mobile Cinema leiðir okkur til Kongó þar sem hópur kvikmyndagerðarfólks ferðast um stríðshrjáð svæði og sýnir íbúum kvikmynd í þeim tilgangi að hafa áhrif á viðhorf fólks til nauðgana.

Sjá nánari upplýsingar um myndirnar í bæklingnum hér að neðan:

Kvikmyndir
Engin skoðun á “(Ó)sýnileg – kvikmyndadagar Amnesty International”

Svara færslunni

You must be logged in to post a comment.