Hjem til jul (Heim um jólin)
- Tegund og ár: Gamandrama, 2010
- Lengd: 90 mín.
- Land: Noregur, Svíþjóð, Þýskaland
- Texti: Íslenskur
- Leikstjóri: Bent Hamer
- Aðalhlutverk: Nina Andresen Borud, Trond Fausa Aurvagg, Arianit Berisha
- Dagskrá: Nýjar myndir
- Sýnd frá: 2. desember 2011
EFNI: Eftir formála í stríðshrjáðum héruðum fyrrverandi Júgóslavíu, segir myndin nokkrar sögur af mismunandi jólahátíðahöldum. Í litla norska bænum Skogli fer verkamaðurinn Paul til læknisins síns og segir frá öllum sínum áföllum. Læknirinn hefur áhyggjur af hjónabandi sínu og erfiðleikum í peningamálum, hann er einnig með samviskubit yfir að hafa þurft að láta konu sína vinna við að svara neyðarsímtölum á aðfangadagskvöld. Annarsstaðar eru eldri maður að útbúa trúarathöfn, miðaldra hjón í leit að ástríðunni, strákur sem er yfirgengilega ástfangin af nágranna sínum sem er múslimatrúar og ungt par sem lendir í því að bíll þeirra bilar þegar konan er í miðjum hríðum.
UMSÖGN: Jólamyndin í ár, án nokkurs vafa! Hefur fengið frábæra dóma.