My Week With Marilyn (Vikan mín með Marilyn)
- Tegund og ár: Drama, 2011
- Lengd: 99 mín.
- Land: Bretland
- Texti: Íslenskur
- Leikstjóri: Simon Curtis
- Aðalhlutverk: Michelle Williams, Eddie Redmayne og Kenneth Branagh
- Dagskrá: Nýjar myndir
- Sýnd frá: 10. febrúar 2012
EFNI: Sagan er byggð á tveimur dagbókum Colin Clarks sem þá var nýskriðinn úr Oxfordháskólanum og hafði tekist að fá vinnu sem aðstoðarmaður við gerð myndarinnar The Prince and the Showgirl eftir mikla þrautsegju. Það upphófst mikið fjölmiðlafár í Bretlandi þegar Marilyn kom til London til að leika í myndinni í leikstjórn sjálfs Sir Laurence Olivier, konungs enskra leikara á þeim tíma. Með í för var eiginmaður Marilyn, rithöfundurinn frægi Arthur Miller, en þau voru þá nýgift og í raun var ferðin til Englands hluti af brúðkaupsferð þeirra.
Þegar Arthur ákveður að fara heim til Bandaríkjanna til að hitta börnin sín á undan Marilyn varð hún bæði óörugg og einmana og leitaði til Colins sem var að sjálfsögðu meira en fús til að gera hvað sem er fyrir þessa fegurstu og frægustu kvikmyndastjörnu heims. Á meðan varð Sir Laurence Olivier (í frábærri túlkun Kenneth Branagh) sífellt stirðari í skapi yfir óstundvísi og sérlundi Marilyn sem tafði tökur og ljóst að eitthvað varð að láta undan…
UMSÖGN: Michelle Williams vinnur sannkallaðan leiksigur í þessari frábæru og stórskemmtilegu kvikmyndaperlu sem goðsögnin Marilyn Monroe. Myndin er tilnefnd til 3 Golden Globe verðlauna, sem besta mynd ársins í flokki gaman-og söngmynda og bæði Michelle Williams og Kenneth Branagh fengu tilnefningu sem bestu leikarar ársins.