La piel que habito (Í eigin skinni)
- Tegund og ár: Drama, 2011
- Lengd: 117 mín.
- Land: Spánn
- Texti: Íslenskur
- Leikstjóri: Pedro Almodóvar
- Aðalhlutverk: Antonio Banderas, Marisa Paredes og Elena Anaya
- Dagskrá: Nýjar myndir (endursýnd frá fyrra ári)
- Sýnd frá: 24. febrúar 2012
EFNI: Antonio Banderas fer hér með hlutverk lýtalæknisins Roberts sem hefur tekist að búa til nýja tegund af húð sem ekki er hægt að brenna né skaða á nokkurn hátt. Samstarfsmönnum sínum segir hann að við tilraunirnar hafi hann einungis notast við rottur. En það er fjarri því að vera satt. Á heimili sínu heldur hann ungri konu fanginni sem hann hefur notað sem tilraunadýr með hjálp þjónustustúlku sinnar, Marillu. En Robert hefur líka sínar eigin persónulegu ástæður fyrir tilraunum og valið á fórnarlambinu er alls ekki byggt á tilviljun. En kvöld eitt þegar Robert er að heiman ber son Marillu að garði. Sá er nýbúinn að fremja rán og hyggst dyljast í húsi Roberts. Þar með er ekki langt í að ljósi verði varpað á sannleikann í málinu og reynist hann óhugnanlegri en nokkur gæti ímyndað sér…