Afhverju þýska?
Þýska sendiráðið, Félag þýskukennara og Þýskudeild HÍ bjóða til pallborðsumræðna í Bíó Paradís 23. mars kl. 16-18 í tengslum við Þýska kvikmyndadaga:
Hvað getur þýska gert fyrir þig?
Stjórnandi er Jórunn Sigurðardóttir dagskrárgerðamaður.
Þekktir íslendingar úr lista-, menningar- og viðskiptalífi segja frá reynslu sinni.
Þýskuþraut
Þýska sendiráðið afhendir verðlaun fyrir besta árangur í þýskuþraut framhaldsskólanna.
Stuttmyndasamkeppni
Verðlaun verða afhend fyrir bestu stuttmynd í stuttmyndasamkeppni framhaldsskólanna og þrjár bestu sýndar.
Ferðagetraun
Wow Air gefur tvo flugmiða til Þýskalands. Færð þú vinning?
Veitingar í boði Þýska sendiráðsins.
Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir!