Stuttmyndadagar í Reykjavík 2012
Hinir árlegu Stuttmyndadagar í Reykjavík fara fram í Bíó Paradís dagana 3.-4. september og hefjast báða daga kl. 20:00. Verðlaunaafhending fer fram seinna kvöldið.
Alls keppa 16 stuttmyndir um þrenn verðlaun; 100.000, 75.000 og 50.000 kr., auk þess sem sigurvegarinn fær boð á Short Film Corner á kvikmyndahátíðinni í Cannes að ári. Þá velja áhorfendur hátíðarinnar einnig sína uppáhaldsmynd.
Eftirtaldar myndir verða sýndar á Stuttmyndadögum 2012 (nöfn leikstjóra fylgja):
MÁNUDAGUR:
- A Little Bit – Halla Mía
- Caught – Sigurður Unnar Birgisson
- Eva – Gígja Jónsdóttir
- Frelsi? – Ingólfur Arnar Björnsson
- Grafir og bein – Anton Sigurðsson
- Kalli Klappsen – Ágúst Elí Ásgeirsson og Jakob van Oosterhout
- Máltíðin – Óskar Bragi Stefánsson
- Stuðtækið – Sigurður Hannes Ásgeirsson og Barði Stefánsson
- Mission to Mars – Haukur M
ÞRIÐJUDAGUR:
- Móðir – Ingimar Elíasson
- Par – Brúsi Ólason
- Requiem – Guðni Líndal Benediktsson
- Stormur – Guðni Líndal Benediktsson
- Svartar kistur – Natan Jónsson
- Til hamingju – Guðni Líndal Benediktsson
- Undying Love – Ómar Örn Hauksson
Í dómnefnd Stuttmyndadaga er einvalalið að venju: Ingvar Þórðarson kvikmyndaframleiðandi, Ísold Uggadóttir kvikmyndaleikstjóri og Örn Marinó Arnarson kvikmyndagerðarmaður.
Stuttmyndadagar hafa verið grasrótarvettvangur íslenskra kvikmynda allt frá 1991. Þar hafa fjölmargir kvikmyndagerðarmenn, sem síðar hafa getið sér gott orð, stigið sín fyrstu spor. Má þar m.a. nefna Árna Óla Ásgeirsson, Maríu Sólrúnu Sigurðardóttur, Rúnar Rúnarsson, Ragnar Bragason, Róbert Douglas, Grím Hákonarson, Reyni Lyngdal og Gunnar B. Guðmundsson.