Frost
- Tegund og ár: Leikin mynd, 2012
- Lengd: 80 mín.
- Land: Ísland
- Leikstjóri: Reynir Lyngdal
- Aðalhlutverk: Anna Gunndís Guðmundsdóttir, Björn Thors og Hilmar Jónsson
- Dagskrá: Nýjar myndir
- Sýnd frá: 21. september 2012
EFNI: Frost fjallar um ungt par, Öglu, sem er jöklafræðingur, og Gunnar, kvikmyndagerðarmann, sem koma að mannlausum rannsóknarbúðum á hálendi Íslands. Leiðangursmenn virðast hafa horfið á dularfullan hátt og Agla og Gunnar standa frammi fyrir óþekktu og banvænu afli.
UMSÖGN: Myndin var að mestu leyti tekin uppá Langjökli í upphafi ársins og lenti hópurinn í miklum erfiðleikum vegna veðurs – nokkuð sem kemst vel til skila í myndinni!
FROST – Official trailer w/ English subtitles from Kisi Production on Vimeo.