Svartir sunnudagar: The Wages of Fear
- Tegund og ár: Leikin mynd, 1953
- Upprunalegt heiti:: Le salaire de la peur
- Lengd: 131 mín.
- Land: Frakkland
- Leikstjóri: Henri-Georges Clouzot
- Aðalhlutverk: Yves Montand, Charles Vanel og Peter van Eyck
- Dagskrá: Svartir sunnudagar
- Sýnd: 20. janúar kl. 20:00
EFNI: Í suður-amerísku þorpi er hópi manna heitið ríflegri áhættuþóknun fyrir að flytja í skyndi farm af nitrógliseríni gegnum torfæran skóg. Vörubílarnir eru illar búnir til flutninga á svo sprengifimum farmi. Og milli vörubílstjóranna myndast rígur um það hverjir þeirra koma farminum á áfangastað. Gríðarleg spenna myndast þegar ekið er yfir lélegar hengibrýr og drullusvöð en ekkert fær stöðvað mennina sem eiga allt undir því að hljóta laun fyrir að takast á við ómennskan óttann, komist þeir alla leið. Og velt er upp spurningum um siðferði manna hjá olíufyrirtækinu sem rekur þannig fátæka menn á vit dauðans, gerir þá að andstæðingum í stað samherja á ögurstundu …
UMSÖGN: Myndin hlaut gullpálmann í Cannes og gullbjörnin í Berlín árið 1953. Hún er eitt af snilldarverkum leikstjórans Henri-Georges Clouzot og gerði aðalleikarann Yves Montand að einni af skærustu stjörnum kvikmyndanna.
Svartir sunnudagar í Bíó Paradís
Þeir Hugleikur Dagsson, Páll Óskar Hjálmtýsson og Sigurjónarnir tveir, Kjartansson og Sigurðsson (Sjón) hafa stofnað cult og klassík hópinn Svarta sunnudaga, sem mun standa fyrir vikulegum kvikmyndasýningum í Bíó Paradís á sunnudagskvöldum í vetur. Fyrir þeim félögum vakir að auðga bíómenningu borgarinnar og njóta lífsgæðanna sem felast í því að klassískar cult myndir séu sýndar í reykvískum bíósal a.m.k. einu sinni í viku. Eftir mikla rekistefnu ákváðu þeir þremenningar að sunnudagskvöld væru bestu kvöldin fyrir svona nokkuð, enda hafa sunnudagskvöld fest sig í sessi í bíómenningu okkar sem aðal-bíókvöldin. Auk þess hefði verið kjánalegt að vera með sýningar t.d. á þriðjudögum undir nafninu Svartir sunnudagar.