Alþjóðleg barnakvikmyndahátíð gekk vonum framar!
Alþjóðleg barnakvikmyndahátíð í Reykjavík, sem haldin var í fyrsta sinn vikuna 29. maí – 4. júní 2013, var vel tekið og vel sótt af börnum unlingum og auðvitað foreldrum en yfir 3800 gestir sóttu hátíðina samanlagt. Rúmlega 3000 börn og ungmenni mættu á frísýningar fyrir öll skólastig sem haldnar voru alla virka daga á meðan hátíðinni stóð. Því mætti segja að fullt hafi verið út úr dyrum daglega, og börn og ungmenni voru ánægð með frábært framtak.
Opnunarmynd hátíðarinnar Ernest og Celestína, sló rækilega í gegn, en myndin var talsett á íslensku. Markmið Heimilis kvikmyndanna er að halda kvikmyndahátíð barna árlega og byggja þar upp hefð í menningarlífi barna og fjölskyldufólks. Slíkur viðburður mun vekja áhuga barna á kvikmyndum og kvikmyndamenningu, stuðla að tengslum við líf og umhverfi annarra barna víða um heim og færa börnum fjölbreyttari upplifun á hvíta tjaldinu en þau hafa haft aðgang að hingað til. Aðstandendur Alþjóðlegrar barnakvikmyndahátíðar í Reykjavík þakka fyrir sig.