Tilboð til geðfatlaðra
Búsetukjörnum geðfatlaðra í Reykjavík og geðdeildum Landspítalans er boðið í Bíó Paradís á sérstökum afsláttarkjörum, alla mánudaga og þriðjudaga, en miðaverð er aðeins 700 krónur. Liðveisla og aðrir starfsmenn fá miðann á sömu kjörum. Tilboðið tekur gildi mánudaginn 2. desember 2013. Við í Bíó Paradís viljum efla aðgengi að listrænum verðlaunamyndum, og taka þátt í að auka tækifæri geðfatlaðra að menningu. Verið velkomin í Bíó Paradís, Hverfisgötu 54, 101 Reykjavík.
Bíó Paradís er fyrsta og eina listræna kvikmyndahúsið í Reykjavík, en sýndar eru nýjar áhugaverðar kvikmyndir frá öllum heimshornum auk hverskyns eldri mynda erlendra sem innlendra, hýsir kvikmyndahátíðir og stendur fyrir fjölbreyttum kvikmyndatengdum viðburðum. Reglulegar sýningar á perlum kvikmyndanna fyrir börn og unglinga fara fram í húsinu, þar sem markmiðið er að efla þekkingu og menntun á þessari mikilvægu listgrein.
Bíó Paradís er því nokkurskonar hjarta kvikmyndamenningar í landinu; áfangastaður allra þeirra sem vilja eiga góðar stundir í afslöppuðu umhverfi sem angar af andrúmslofti kvikmyndanna. Hús af þessu tagi eru meðal lykilstofnana höfuðborga víðsvegar um heim, vinsælir áfangastaðir fyrir heimamenn jafnt sem ferðamenn. Þau má til dæmis finna á öllum Norðurlöndunum, í flestum Evrópulöndum og í helstu borgum Bandaríkjanna og Kanada.
Samstarfsvettvangur um fjölbreyttar kvikmyndasýningar Bíó Paradís er samstarfsvettvangur flestra þeirra sem koma að kvikmyndamálum í landinu.