Warning: Declaration of description_walker::start_el(&$output, $item, $depth, $args) should be compatible with Walker_Nav_Menu::start_el(&$output, $item, $depth = 0, $args = Array, $id = 0) in /home/forge/old.bioparadis.is/public/wp-content/themes/newscast/framework/classes/description_walker.php on line 43
Hrönn Sveinsdóttir valin í dómnefnd á Berlinale

Hrönn Sveinsdóttir valin í dómnefnd á Berlinale

Dec 11, 2013 Engin skoðun

Hrönn Sveinsdóttir, framkvæmdastjóri Bíó Paradís, hefur verið valin í dómnefnd á Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Berlín –Berlinale fyrir Europa Cinemas label viðurkenninguna. Hátíðin verður haldin 6. – 16. febrúar 2014 næstkomandi og er einn af stærstu kvikmyndaviðburðum í Evrópu og í heiminum öllum.

Europa Cinemas hefur frá árinu 2003, veitt ákveðnum kvikmyndum viðurkenningu til þess að efla kynningu, dreifingu og aðsókn á evrópskum verðlaunamyndum í kvikmyndahúsum um alla Evrópu. Viðurkennningin er veitt á vegum sérlegrar dómnefndar sem skipuð er af meðlimum samtakanna til einnar evrópskrar kvikmyndar á fimm stærstu kvikmyndahátíðum í Evrópu: á Panorama á Berlinale, Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Berlín, á Director´s Fortnight á Kvikmyndahátíðinní Cannes, East of the West og aðalkeppnisflokknum (Official Competition) á Karlovy Vary Alþjóðlegri kvikmyndahátíð, og Giornate Degli Autori á Kvikmyndahátíðinni í Feneyjum.

Verðlaunin eru veitt á mjög dýrmætu augnabliki, því stökkpallur evrópskra kvikmynda er á kvikmyndahátíðum til þess að þær öðlist viðurkenningar og athygli dreifingaraðila víðsvegar um heim.

„Þetta er frábær viðurkenning,  því það er eftir því tekið hversu mikilvægt og metnaðarfullt starf fer fram hér í Bíó Paradís. Dagskrárgerðin hér í bíóinu hefur svo sannarlega sótt í sig veðrið og hafa Evrópskrar verðlaunakvikmyndir verið sýndar hér í bíónu ásamt gríðarlega öflugri sérdagskrá. Þetta er mikil stuðningsyfiryfirlýsing frá Europa Cinemas við starfsemi fyrsta og eina listræna kvikmyndahússins á Íslandi, Bíó Paradís. Við fögnum þessu mjög, að dagskrárgerðin okkar sé að vekja athygli erlendis og að alþjóðlegir aðilar horfi til okkar í því samhengi að veita evrópskri kvikmynd sérstaka viðurkenningu á Berlínarhátíð“, segir Hrönn Sveinsdóttir, framkvæmdastjóri Bíó Paradís.

Hér er hægt að lesa nánar um Europa Cinemas viðurkenninguna, eða Europa Cinemas Label hér:

Nánar er hægt að lesa um Kvikmyndahátíðina í Berlín hér:

Nanna Dís, tók myndina af Hrönn Sveinsdóttur.

Fréttir/pistlar, Ísland, Kvikmyndir, Uncategorized
Engin skoðun á “Hrönn Sveinsdóttir valin í dómnefnd á Berlinale”

Svara færslunni

You must be logged in to post a comment.