Örvarpið í samstarf við Bíó Paradís!
Örvarpið er örmyndahátíð RÚV á netinu og vettvangur fyrir upprennandi, skapandi og framsækið fólk í kvikmyndalist. Hátíðin er ætluð öllum með áhuga á kvikmyndalist, reyndum sem óreyndum, ungum sem öldnum. Gerðu tilraunir með örmyndaformið, hvort sem eru tilraunakenndar stuttmyndir, vídeólist, hreyfimyndir, stutt-heimildarmyndir, tölvuteiknimyndir eða eitthvað allt annað – allt er leyfilegt. Myndin má ekki vera lengri en 5 mínútur enda er Örvarpið örmyndahátíð. Lokasýning Örvarpsins verður haldin 1. mars 2014.
Öllum er velkomið að taka þátt í hátíðinni. Sérstök valnefnd velur vikulega eitt verk til sýningar á vefnum. Valin verk verða í kjölfarið til sýningar á örmyndahátíðinni Örvarpið í Bíó Paradís, sem haldin verður eftir áramót. Völdum verkum verða einnig gerð skil í sjónvarpi.
Hér er hægt að kynna sér Örvarpið á vefsíðu RUV
Hér er hægt að kynna sér Örvarpið á Facebook
Bíó Paradís er stoltur samtarfsaðili Örvarpsins, fylgist með!