Lífshætta – frumflutt í Bíó Paradís
Þann 7. Janúar 2014 kl. 16.30 verður útvarpsleikritið Lífshætta eftir Þóreyju Sigþórsdóttur frumflutt í Bíó Paradís, sal 2.
Þetta er leikgerð byggð á á sögum Jakobínu Sigurðardóttur Lífshætta úr Sjö vindur gráar 1970 og Í sama klefa 1981. Leikritið er unnið í samvinnu við RÚV og er lokaverkefni Þóreyjar Sigþórsdóttur í MA námi í Hagnýtri Menningarmiðlun. Framleiðandi fyrir hönd RÚV er Viðar Eggertsson.
Lífshætta verður flutt í Útvarpsleikhúsi RÚV á næsta leikári en hér gefst tækifæri til að njóta þess að hlusta á frumflutning verksins í þéttu myrkri bíósals með öðrum hlustendum og í góðum hljómgæðum. Það er gaman að geta þess að Jakobína Sigurðardóttir fer sjálf með eitt hlutverkanna í verkinu.
Boðið verður uppá tíu dropa á undan sýningunni. Eftir sýningu er Happy Hour á barnum!
Frumflutningurinn tekur um eina klukkustund. Allir eru velkomnir meðan húsrúm leyfir! Aðgangur ókeypis.
Persónur og leikendur
Stína: Halldóra Rósa Björnsdóttir
Anna: Elva Ósk Ólafsdóttir
Eiginmaður Stínu: Gunnar Hansson
Dóttir Stínu: Kristín Erna Úlfarsdóttir
Jakobína: Þórey Sigþórsdóttir
Salóme kölluð Sala: Jakobína Sigurðardóttir
Hljóðvinnsla: Einar Sigurðsson
Leikstjóri: Þórey Sigþórsdóttir