Ofurhetjumyndin Antboy hlýtur áhorfendaverðlaun!
Alþjóðleg barnakvikmyndahátíð í Reykjavík hlaut stórkostlegar viðtökur en henni er nýlokið í Bíó Paradís og hlaut hin geysivinsæla ofurhetjumynd Antboy áhorfendaverðlaun hátíðarinnar. Fjölbreytt og spennandi efnistök hátíðarinnar vöktu almenna hrifningu og stóð upp úr sú gífulega þrjúbíósstemning sem myndaðist á nokkrum vinsælustu sýningum hátíðarinnar, sem vakti upp mikla nostalgíu meðal eldri gesta hátíðarinnar. Skólasýningar sem í boði voru virka daga hátíðarinnar að kostnaðarlausu slógu einnig í gegn.
Á meðan hátíðinni stóð gafst gestum kostur á að velja sína uppáhalds mynd og greiða henni atkvæði sitt. Átta myndir voru tilnefndar, Antboy, Andri og Edda verða bestu vinir, Dagur krákanna, Á leið í skólann, Fótboltadraumar, Klara og leyndarmál bjarndýranna, Þyngd fílanna og Austanvindur.
Myndin um ofurhetjuna Antboy hlaut flest atvæði og var einnig með bestu meðaleinkunnina þó mjótt hafi verið á mununum.
Bíó Paradís þakkar áhorfendum fyrir þátttökuna í kosningunum. Bíó Paradís vill einnig þakka öllum sem hönd lögðu á plóginn við hátíðina í ár. Antboy og Andri og Edda verða bestu vinir munu halda áfram í almennum sýningum.