Rokland
- Tegund og ár: Leikin mynd, 2010
- Lengd: 110 mín.
- Land: Ísland
- Leikstjóri: Marteinn Þórsson
- Aðalhlutverk: Ólafur Darri Ólafsson, Elma Lísa Gunnarsdóttir, Stefán Hallur Stefánsson
- Dagskrá: Nýjar myndir
- Sýnd frá: 11. mars 2011
EFNI: Böddi Steingríms snýr aftur heim á Sauðárkrók eftir tíu ára námsdvöl í Þýskalandi og fer að kenna við Fjölbrautaskólann. En Krókurinn reynist of lítill staður fyrir svo stóryrtan og hagyrtan mann og Bödda er sagt upp störfum eftir að hafa gengið fram af nemendum í helgarferð þar sem ungfrú Norðurland fótbrotnaði á söguslóðum Grettis Ásmundarsonar í Drangey. Böddi er andans maður í ríki efnishyggjunnar og fær útrás á bloggsíðu sinni þar sem hann beinir spjótum sínum að sveitungum sínum og nútímaþjóðfélaginu eins og það leggur sig. Og einn góðan veðurdag segir hann því stríð á hendur … Rokland er saga um einmana uppreisnarmann sem er of gáfaður fyrir Krókinn, of reiður fyrir Reykjavík og of hreinskilinn fyrir Ísland.
UMSÖGN: Ólafur Darri og Elma Lísa hlutu Edduna á dögunum fyrir leik sinn í myndinni.