ARNARHREIÐRIÐ: Magnús
- Tegund og ár: Dramatísk gamanmynd, 1989
- Lengd: 93 mín.
- Land: Ísland
- Leikstjórn: Þráinn Bertelsson
- Aðalhlutverk: Egill Ólafsson, Jón Sigurbjörnsson, Guðrún Gísladóttir, Þórhallur Sigurðsson (Laddi), Margrét Ákadóttir
- Dagskrá: Arnarhreiðrið
- Sýnd: 21. september 2011
EFNI: Magnús er lögfræðingur sem kippir sér ekki upp við að láta bera út ekkju og munaðarleysingja, en honum bregður í brún þegar hann fær skyndilega að vita að hann sé haldinn alvarlegum sjúkdómi.
UMSÖGN: Ein ástsælasta mynd Þráins Bertelssonar. Var m.a tilnefnd til Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna og valin besta íslenska myndin af sérlegri dómnefnd Lands & sona á seinnihluta tíunda áratugs síðustu aldar.
Leikstjórinn verður viðstaddur sýninguna og svarar spurningum gesta að henni lokinni.