Opnunarmynd: Backyard
- TEGUND: Heimildamynd
- LENGD: 72 mín.
- LAND: Ísland
- STJÓRNANDI: Árni Sveinsson
Backyard, tónleikamynd eftir Árna Sveinsson og Sindra Kjartansson, er opnunarmynd Bíós Paradísar. Myndin lýsir tónleikum sem haldnir voru í miðbæ Reykjavíkur á Menningarnótt 2009, nánar tiltekið í bakgarði á horni Bergþórugötu og Frakkastígs. Fram koma margar af ferskari hljómsveitum landsins; Hjaltalín, FM Belfast, Múm, Reykjavík!, Retro Stefson, Borko og Sin Fang Bous.
Backyard er bráðskemmtilegt portrett af reykvískri músiksenu, full af fjöri og krafti. Myndin bar sigur úr býtum á heimildamyndahátíðinni Skjaldborg í vor og kom bíógestum þar í feykilegt partístuð!
- DAGSKRÁ: Nýjar myndir
- SÝND: 15.-22. september