Morgunn lífsins
Þjóðverjar gerðu þessa mynd um miðja síðustu öld, en bækur Kristmanns nutu vinsælda þar í landi á fyrrihluta aldarinnar. Leikstjóri var Robert A. Stemmle og með helstu hlutverk fóru Heidemarie Hatheyer, Ernst Wilhelm Borchert, Werner Hinz og Ingrid Andree.
Morgunn lífsins gerist í sjávarplássi og lýsir óhamingjusömum ástum í tvær kynslóðir þar sem syndir feðranna koma niður á börnunum. Upphaflega var ætlunin að taka kvikmyndina í íslensku umhverfi, en ekki varð af því heldur var myndin að mestu tekin í gömlu þorpi á suðurströnd Svíþjóðar.
Myndin var jólamynd Gamla bíós árið 1956 og sló í gegn hér á landi enda voru myndir byggðar á íslenskum skáldsögum afar sjaldséðar í þá daga.
Í tilefni 110 ára afmælis skáldsins um þessar mundir gefur rafbókaútgáfan Lestu.is bókina út á rafrænu formi, en hún kom upphaflega út 1929 og naut mikilla vinsælda.
Kristmann Guðmundsson
Kristmann Guðmundsson (1901-1983) gaf ungur út eina ljóðabók á íslensku, en flutti svo til Noregs og sló þar í gegn sem rithöfundur. Verk Kristmanns voru þýdd á fjöldamörg tungumál og hann naut hylli víða um lönd. Á fjórða áratugnum fluttist hann svo til Íslands og bjó hér til dánar-dags. Einkalíf Kristmanns var umtalað, hann giftist alls 9 konum og gengu um hann margskonar kjaftasögur.