Svartur á leik
- Tegund og ár: Drama, 2012
- Lengd: 100 mín.
- Land: Ísland
- Texti: Enskur
- Leikstjóri: Óskar Þór Axelsson
- Aðalhlutverk: Þorvaldur Davíð Kristjánsson, Jóhannes Haukur Jóhannesson, Damon Younger ogMaría Birta
- Dagskrá: Nýjar myndir
- Sýnd frá: 2.mars 2012
EFNI: Stebbi psycho (Þorvaldur Davíð Kristjánsson) flækist inn í heim eiturlyfja og glæpa í gegnum Tóta (Jóhannes Haukur Jóhannesson), æskuvin sinn frá Ólafsvík. Tóti hóf ferilinn sem handrukkari fyrir Jóa „Faraó“ sem er búinn að vera stærsti eiturlyfjasali Íslands síðan á 8. áratugnum. Í félagi við hinn skuggalega Brúno (Damon Younger), ákveður Tóti að stíga skrefið til fulls og taka yfir eiturlyfjamarkaðinn. Stebbi er skyndilega kominn í hringiðu atburða sem hann hefur enga stjórn á…
UMSÖGN: Svartur á leik er byggð á samnefndri metsölubók eftir Stefán Mána. Kvikmyndin lýsir atburðum sem gerast undir síðustu aldamót, þegar íslenskir undirheimar gengu í gegnum mikið umbreytingaskeið. Myndin er að miklu leiti byggð á sönnum atburðum. Þessi fyrsta kvikmynd leikstjórans Óskars Þórs Axelssonar er glæpamynd sem sver sig í ætt við Goodfellas og Pusher-myndirnar, en leikstjórinn Nicolas Winding Refn, er einmitt meðframleiðandi að Svartur á leik.
Stiklan er hér.