Þjóðfræði í mynd
Síðastliðin þrjú sumur hafa þjóðfræðinemarnir Björk Hólm Þorsteinsdóttir og Ólafur Ingibergsson, með styrk frá Nýsköpunarsjóði námsmanna, námsbraut í þjóðfræði og Háskóla Íslands, unnið að heimildaþáttaröðinni Þjóðfræði í mynd. Fjórir þættir litu dagsins ljós síðastliðið sumar sem verða frumsýndir fimmtudaginn 22. nóvember kl. 20.00 í Bíó paradís. Auk þess verður ný heimasíða verkefnisins formlega opnuð, þar sem finna má alla þættina sem framleiddir hafa verið undanfarin ár.
Hver þáttur miðlar niðurstöðum úr nýlegri BA eða MA rannsókn þjóðfræðinema og gefur þannig almenningi innsýn í rannsóknir háskólasamfélagsins. Meginmarkmið verkefnisins hefur þó alltaf verið að framleiða fræðsluefni sem nýta má sem innslög í kennslu meðfram öðru kennsluefni í framhalds- og háskólum. Með verkefninu eru fetaðar alveg nýjar leiðir við framleiðslu á ódýru og faglegu fræðsluefni fyrir framhaldsskóla á Íslandi.
Þættirnir eru einnig verðug kynning fyrir fræðimennina sem að baki hverri ritgerð standa og vekja verðskuldaða athygli á metnaðarfullum rannsóknum þeirra sem oft og tíðum fá litla athygli utan háskólasamfélagsins. Þáttaröðin hefur vakið talsverða athygli undanfarin ár eins og sýnir sig í því að þættirnir sem áður hafa verið birtir hafa fengið nærri 8000 áhorf á netinu hingað til.
Frumsýningin er öllum opin og aðgangur ókeypis, svo lengi sem húsrúm leyfir. Að sýningunni lokinni munu Björk og Ólafur svara spurningum úr sal.