Jagten
- Tegund og ár: Leikin mynd, 2012
- Lengd: 115 mín.
- Land: Danmörk
- Texti: Íslenskur
- Leikstjóri: Thomas Vinterberg
- Aðalhlutverk: Mads Mikkelsen, Thomas Bo Larsen, Annika Wedderkopp
- Dagskrá: Nýjar myndir
- Sýnd frá: 22. febrúar 2013
EFNI: Getur lygi orðið að sannleika? Kvikmyndin Jagten sýnir á áhrifaríkan og óþægilegan máta hversu hratt slúður, efi og illgirni geta gert lygar sannar. Sagt er frá leikskólakennaranum Lucasi sem er ranglega sakaður um að misnota barn í leikskólanum. Í kjölfarið verður hann skotmark múgsefjunar og honum útskúfað úr samfélaginu.
UMSÖGN: Kvikmyndin, sem er í leikstjórn Thomasar Vinterberg (Festen og Submarino), spilar með tilfinningar áhorfenda þannig að spennan smýgur inn í merg og bein. Það er ekki síst fyrir tilstilli Mads Mikkelsen, sem er framúrskarandi í aðalhlutverki myndarinnar og var valinn besti leikarinn fyrir hlutverkið á Cannes kvikmyndahátíðinni 2012.
Í Jagten er fjallað á einstakan hátt um brotalamir í samfélaginu sem koma í ljós þegar kvittur fer á kreik og óhætt að segja efni myndarinnar eigi erindi við Íslendinga þessa dagana.