Warning: Declaration of description_walker::start_el(&$output, $item, $depth, $args) should be compatible with Walker_Nav_Menu::start_el(&$output, $item, $depth = 0, $args = Array, $id = 0) in /home/forge/old.bioparadis.is/public/wp-content/themes/newscast/framework/classes/description_walker.php on line 43
Svartir sunnudagar: The Last House on the Left og The Virgin Spring

Svartir sunnudagar: The Last House on the Left og The Virgin Spring

Apr 29, 2013 Engin skoðun

The Virgin Spring / Jungfrukällan

  • Tegund og ár:  Leikin mynd, 1960
  • Lengd: 89 mín.
  • Leikstjóri: Ingmar Bergman
  • Handrit: Ulla Isaksson
  • Aðalhlutverk: Max von Sydow, Birgitta Valberg, Gunnel Lindblom
  • Land: Svíþjóð
  • Dagskrá: Svartir sunnudagar
  • Sýnd: 5. maí kl. 20:00

The Last house on the Left 

  • Tegund og ár:  Hryllingsmynd, 1972
  • Lengd: 84 mín.
  • Leikstjóri: Wes Craven
  • Handrit: Wes Craven
  • Aðalhlutverk: Sandra Peabody, Lucy Grantham, David Hess
  • Land: USA
  • Dagskrá: Svartir sunnudagar
  • Sýnd: 5. maí kl. 20:00

Efni: Lokasýning Svartra sunnudaga fer fram sunnudagskvöldið 5. maí þar sem verða sýndar hvorki meira né minna en tvær myndir á einni sýningu sem hefst klukkan 20:00 í Bíó Paradís. Á þessari Bíó-tvennu munu verða sýndar myndirnar Jómfrúarvorið (Jomfrukällan/The Virgin Spring) eftir Ingmar Bergman frá árinu 1960 og The Last House on the Left eftir hryllingsmeistarann Wes Craven frá 1972. Þessi samsuða kann að virðast einkennileg við fyrstu sýn, en staðreyndin er sú að þessar tvær myndir byggja á sömu sögu, þ.e. seinni myndin er í raun endurgerð á þeirri fyrri, sem byggð er á gömlu sænsku miðaldarljóði.

Mynd Bergmans gerist í sænskri sveit á miðöldum og skartar meðal annara Max Von Sydow í aðalhlutverki. Hún segir frá ungri konu sem er nauðgað og myrt af flækingum sem síðan verða svo óheppnir að leita húsaskjóls á heimili syrgjandi foreldra fórnarlambsins.

Í The Last House on the Left færir Wes Craven þessa sögu til nútímans (1972) og óhætt er að segja að sagan sé öllu blóðugri í meðförum hrollvekjumeistarans. The Last House on the Left var frumraun Cravens, framleidd af öðrum hrollvekjumeistara, Sean S. Cunningham (Friday the 13th).

Sagan sem myndirnar tvær segja veltir upp spurningum um hefndina og siðferðislegt réttmæti hennar. Því skal lofað að áhorfendur koma ekki ósnortnir útaf þessum magnaða kvikmynda-kokteil Svartra sunnudaga.

Í kjölfar helgarinnar munu Svartir sunnudagar draga sig í hlé yfir sumartímann en áætla að koma tvíelfdir inn í Paradísina á komandi hausti með glæsilega dagskrá költ-mynda af öllum stærðum og gerðum. Aðstandendur Svartra sunnudaga, Hugleikur Dagsson, Páll Óskar Hjálmtýsson, Sigurjón Kjartansson og Sjón þakka öllum sem mætt hafa í vetur, enda hefur aðsóknin verið mjög góð á þær 30 myndir sem sýndar hafa verið undir merkjum hópsins.

Hér er hægt að kaupa miða:

 

Dagskrá vikunnar, Kvikmyndir, Svartir sunnudagar, Uncategorized
Engin skoðun á “Svartir sunnudagar: The Last House on the Left og The Virgin Spring”

Svara færslunni

You must be logged in to post a comment.