Miðasala á Alþjóðlega barnakvikmyndahátíð er hafin!
Börn, unglingar og fjölskyldur þeirra munu njóta sannkallaðrar kvikmyndaveislu í Bíó Paradís á Alþjóðlegri barnakvikmyndahátíð í Reykjavík 2013 vikuna 29. maí – 4. júní 2013. Hátíðin mun færa börnum og unglingum á Íslandi aðgang að áhugaverðum barna- og unglingakvikmyndum sem hlotið hafa viðurkenningar um allan heim.
Á midi.is er hægt að skoða dagskrána, og kaupa miða á allar sýningar hátíðarinnar hér: Einnig er hægt að nálgast miða í miðasölu Bíó Paradís. Myndirnar eru með íslenskum texta en vert er að taka það fram að opnunarmynd hátíðarinnar, Ernest og Celestína, er talsett á íslensku.
Hér er hægt að kaupa miða á hverja sýningu fyrir sig með því að smella á titil:
[…] Vikuna 29. maí – 4. júní 2013 verður haldin Alþjóðleg barnakvikmyndahátíð í Bíó Paradís. Sýndar verða áhugaverðar barna- og unglingakvikmyndir sem hlotið hafa viðurkenningar um allan heim. Sjá nánar hér. […]