Markaður í Bíó Paradís!
- Tegund og ár: Markaður í Bíó Paradís 2013
- Lengd: 12:00 – 17:00 þann 10. ágúst
- Land: Ísland
- Leikstjóri: Starfsmenn Bíó Paradís
- Aðalhlutverk: Ýmsir þátttakendur
- Framleiðslufyrirtæki: Bíó Paradís
- Dagskrá: Geggjað stuð allan daginn í Bíó Paradís
- Ókeypis aðgangur.
Efni: Laugardaginn 10. ágúst milli kl. 12:00-17:00 verður Bíó Paradís markaðurinn haldin í þriðja sinn. Við erum með fullkomna aðstöðu fyrir markað og allir eru velkomnir að selja og kaupa. Á fyrstu tveimur mörkuðunum var mikil eftirspurn eftir plássum og komust færri að en vildu svo endilega tryggið ykkur pláss í tæka tíð.
Brakandi ferskt bíópopp verður til sölu í sjoppunni og tilboð á bjór. Kíkið við og fáið ykkur kaffi, nammi, bjór eða popp og gramsið í forneskjunni.
Þeir sem hafa áhuga á að selja fötin sín, vínylplöturnar, dvd, spólur, rúlluskauta, listaverk eða aðrar gersemar, eru vinsamlegast beðnir um að senda okkur línu á biomarkadur@gmail.com. Plássið kostar 2.000 kr.
Hlökkum til að sjá ykkur.