Warning: Declaration of description_walker::start_el(&$output, $item, $depth, $args) should be compatible with Walker_Nav_Menu::start_el(&$output, $item, $depth = 0, $args = Array, $id = 0) in /home/forge/old.bioparadis.is/public/wp-content/themes/newscast/framework/classes/description_walker.php on line 43
Á annan veg

Á annan veg

Dec 06, 2011 Engin skoðun
  • Tegund og ár: Gamandrama, 2011
  • Lengd: 89 mín.
  • Land: Ísland
  • Framleiðandi: Mystery
  • Leikstjórn: Hafsteinn Gunnar Sigurðsson
  • Aðalhlutverk:: Hilmar Guðjónsson, Sveinn Ólafur Gunnarsson og Þorsteinn Bachmann
  • Dagskrá: Nýjar myndir
  • Sýnd frá: 3. október 2011 / Endursýnd frá 9. desember 2011

EFNI: Meinfyndin og mannleg kómedía sem segir frá tveimur ungum mönnum sem starfa við vegavinnu á afskekktum fjallvegum á 9. áratugnum. Þeir handmála merkingar á malbik og reka niður tréstikur í vegkanta og hafa ekkert nema hvorn annan og tilbreytingalausa vinnuna – sem væri kannski allt í lagi ef þeim líkaði betur hvor við annan. En eftir að lífið tekur óvænta stefnu læra þeir að meta félagsskap hvors annars og þróa með sér vináttu – enda báðir á krossgötum í lífinu.

UMSÖGN: Þessi bíófrumraun Hafsteins Gunnars Sigurðssonar hefur fengið frábæra dóma líkt og fræðast má um hér. Þá fékk hún The Baltic Film Prize á Norrænu kvikmyndahátíðinni í Lübeck Þýskalandi í byrjun nóvember og á dögum hlaut hún fyrstu verðlaun á Kvikmyndahátíðinni í Torino á Ítalíu, auk þess sem myndin fékk verðlaun fyrir besta handrit.

Evrópa, Ísland, Kvikmyndir
Engin skoðun á “Á annan veg”

Svara færslunni

You must be logged in to post a comment.