Warning: Declaration of description_walker::start_el(&$output, $item, $depth, $args) should be compatible with Walker_Nav_Menu::start_el(&$output, $item, $depth = 0, $args = Array, $id = 0) in /home/forge/old.bioparadis.is/public/wp-content/themes/newscast/framework/classes/description_walker.php on line 43
Frakkland

Færslur fyrir Frakkland

Dark Touch

Mar 16, 2014 Engin skoðun

Myndin fjallar um hina ellefu ára gömlu Neve, sem er ein eftirlifenda eftir blóðugt fjöldamorð þar sem bæði foreldrar og yngri bróðir létu lífið í afskekktum bæ á Írlandi.

Frakkland, Írland, Kvikmyndir Lesa meira

Inside Llewyn Davis

Feb 28, 2014 Engin skoðun

Ekki missa af þessari snilld þeirra Coen bræðra. Í stuttu máli hefur myndin fengið 69 tilnefningar og unnið 31 titil sem segir meira en mörg orð. Myndin verður frumsýnd föstudaginn 28. febrúar kl. 20.00

Bandaríkin, England, Frakkland, Kvikmyndir Lesa meira

Ég um mig og mömmu

Feb 18, 2014 Engin skoðun

Djúp og frábær skemmtun á sama tíma. Frumsýnd í Bíó Paradís 21. febrúar.

Lesa meira

Kaffihúsaspjall með Salvöru Nordal

Feb 18, 2014 Engin skoðun

Salvör Nordal heimspekingur mun verða með kaffihúsaspjall í Bíó Paradís um líknardráp. Umræðuvakinn er kvikmyndin Miele en aðalpersóna myndarinnar vinnur á svörtum markaði líknardrápa.

Lesa meira

Svartir Sunnudagar: Regnhlífarnar í Cherbourg

Feb 17, 2014 Engin skoðun

Regnhlífarnar í Cherbourg verður sýnd í Bíó Paradís, 23. febrúar kl. 20:00 á Svörtum Sunnudegi. Hver einasta setning er sungin í myndinni og má hiklaust taka sér það til fyrirmyndar dagpart. Svartir Sunnudagar eru í umsjá Sigurjóns Kjartanssonar, Sjón og Hugleiks Dagssonar.

Lesa meira

Miele

Feb 05, 2014 2 skoðanir

Grípandi saga sem fjallar um Irene, sem býr ein og lifir einangruðu lífi. Hún stendur frammi fyrir erfiðum ákvörðunum í starfi sínu við líknardráp.

Lesa meira

Venus in Fur

Jan 29, 2014 Engin skoðun

Eftir vonlausan dag í leit að réttu leikkonunni fyrir leiksýningu, býr Thomas sig undir að leggja upp laupana. Á þeirri stundu birtist leikkona að nafni Vanda. Ekki er hún aðeins þurfandi, óhefluð, síkvartandi og örvæntingafull, heldur mætir hún með búninga og kann hlutverkið utan að. Mikilfengleg sjón er í uppsiglingu. Myndin er nýjasta mynd hins þekkta leikstjóra Roman Polanski.

Lesa meira

Young and Beautiful

Jan 24, 2014 Engin skoðun

Myndin fjallar um 17 ára gamla franska stúlku, yfir fjórar árstíðir og fjögur lög, um kynferðislega vakningu hennar til fyrstu reynslunnar, um könnun hennar í ástarmálum til leitar hennar að sjálfsmynd sinni. Myndin heitir á frummálinu Jeune & Jolie og var hún tilnefnd til Palme d´Or verðlaunina á kvikmyndahátíðinni í Cannes 2013. Hún er einnig sýnd á kvikmyndahátíðinni í Toronto 2013.

Lesa meira

Tilboð til háskólanema – Young and Beautiful

Jan 09, 2014 Engin skoðun

Við bjóðum öllum háskólanemum 2 fyrir 1 frumsýningarhelgina á hina áhugaverðu verðlaunamynd, Young and Beautiful, 24.- 26. janúar í Bíó Paradís. Nauðsynlegt er að sýna skólaskírteini. Í myndinni er Isabelle, aðalpersónu myndarinnar, fylgt eftir gegnum kynferðislega vakningu hennar í klámvæddum heim samtímans.

Lesa meira

Alan Partridge: Alpha Papa

Dec 23, 2013 Engin skoðun

Þegar útvarpsstöð hins fræga plötusnúðs Alans Partridge er yfirtekin af fjölmiðlarisum, fer ansi skemmtileg atburðarás af stað sem hefur það í för með sér að Alan verður að vinna með lögreglunni til þess að sætta möguleg átök starfsmannana sem þar starfa og hinna nýju eigenda. Ekki missa af stórkostlegri gamanmynd, með hinum dásamlega Steve Coogan í aðalhlutverki.

Lesa meira