Warning: Declaration of description_walker::start_el(&$output, $item, $depth, $args) should be compatible with Walker_Nav_Menu::start_el(&$output, $item, $depth = 0, $args = Array, $id = 0) in /home/forge/old.bioparadis.is/public/wp-content/themes/newscast/framework/classes/description_walker.php on line 43
Bíó Paradís opnar í september

Bíó Paradís opnar í september

Aug 29, 2010 Engin skoðun

Regnboginn við Hverfisgötu gengur í endurnýjun lífdaganna í september næstkomandi og fær heitið Bíó Paradís – heimili kvikmyndanna.

Bíó Paradís mun hafa á dagskrá sinni nýjar áhugaverðar kvikmyndir víðsvegar að, auk hverskyns eldri mynda erlendra sem innlendra, hýsa kvikmyndahátíðir og standa fyrir hverskyns kvikmyndatengdum viðburðum. Þá er stefnt að því að koma á reglulegum skólasýningum í húsinu þar sem markmiðið er að efla þekkingu og menntun á þessari mikilvægu listgrein. Þar verður einnig að finna veitingahús og verslun með mynddiska og annan kvikmyndatengdan varning.

Bíó Paradís verður því nokkurskonar hjarta kvikmyndamenningar í landinu; áfangastaður allra þeirra sem vilja eiga góðar stundir í afslöppuðu umhverfi sem angar af andrúmslofti kvikmyndanna.

Hús af þessu tagi eru meðal lykilstofnana höfuðborga víðsvegar um heim, vinsælir áfangastaðir fyrir heimamenn jafnt sem ferðamenn. Þau má til dæmis finna á öllum Norðurlöndunum, í flestum Evrópulöndum og í helstu borgum Bandaríkjanna og Kanada.

Fréttir/pistlar
Engin skoðun á “Bíó Paradís opnar í september”

Svara færslunni

You must be logged in to post a comment.