RIFF í Bíó Paradís
RIFF 2010, Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík, verður í Bíó Paradís frá 23. september til 3. október. Dagskrá Bíó Paradísar fer aftur af stað af fullum krafti 4. október. Októberdagskráin verður kynnt eftir viku.

Bíó Paradís hefur farið mjög vel af stað og við erum afar þakklát fyrir móttökurnar. Slástu í hópinn á Fésbók. Um 3.500 manns þegar búnir að melda sig – hátt á annað hundrað bætast við daglega.
Nú þegar Bíó Paradís hefur opnað og við blasir breytt landslag í kvikmyndamenningu Íslendinga, er rétt að halda því til haga að án kjarkaðrar og framsýnnar ákvörðunar borgarstjórnar Reykjavíkur um að styrkja verkefnið myndarlega nú um mitt sumar, hefði ekki orðið af þessari starfsemi. Framlag borgarinnar leysti úr læðingi margskonar krafta fólks úr öllum áttum, sem lagði saman til að gera þessa hugsjón að veruleika á undraskömmum tíma.
Okkur er það sérstakur heiður að hafa á opnunardagskránni valdar myndir úr hinni frægu frönsku nýbylgju sjötta og sjöunda áratugsins síðasta: 400 högg (Les quatre cents coups, 1959); Andköf (A bout de souffle, 1960); Cleo frá 5 til 7 (Cléo de 5 à 7, 1962) og Kátu stúlkurnar (Les bonnes femmes, 1960). Einstakur menningarviðburður!