Warning: Declaration of description_walker::start_el(&$output, $item, $depth, $args) should be compatible with Walker_Nav_Menu::start_el(&$output, $item, $depth = 0, $args = Array, $id = 0) in /home/forge/old.bioparadis.is/public/wp-content/themes/newscast/framework/classes/description_walker.php on line 43
Liljur vallarins

Liljur vallarins

Oct 11, 2010 Engin skoðun
  • Tegund og ár: Heimildamynd, 2010
  • Lengd: 53 mín.
  • Land: Ísland
  • Stjórnandi: Þorsteinn Jónsson

EFNI: Liljur vallarins fjallar um stórar spurningar – um Guð, tilgang lífsins og hvernig menn eiga að haga lífi sínu. Þessar spurningar eru settar fram í raunverulegu umhverfi í fámennri sveit, þar sem sköpunarverkið blómstrar – menn, dýr og náttúra.

Myndin er tekin í Kjósinni, sem er 200 manna sveitasamfélag í skjóli við Esjuna. Sr  Gunnar Kristjánsson kemur þangað með róttækar hugmyndir frá Evrópu um frið og náttúruvernd. Í hans huga eru þær nátengdar kenningum Jesú frá Nasaret og boðskap Biblíunnar. Í sókninni eru ekki allir á einu máli um það.

Er hægt að planta áhuga á náttúruvernd eða sá fræjum friðar úr prédikunarstólnum, þegar kirkjusókn er ekki meiri en raun ber vitni? Getur presturinn hjálpað sóknarbörnunum að verða betri manneskjur? Eflir trúin virðingu manna fyrir sköpunarverkinu og góðu mannlegu samfélagi? Er náttúran heilög eins og lífið? Þessum spurningum er ekki öllum létt að svara, en þær eru þess virði að gefa þeim gaum.

Séra Gunnar berst fyrir málstað mannúðar, friðar og náttúruverndar með þeirri dyggð sem honum finnst duga best, hófsemdinni.

Persónur í myndinni eru bændur, Guðbrandur og Annabella í Hækingsdal, Snorri í Sogni, Hreiðar og Ásta á Grímstöðum, Kristján og Dóra á Neðra Hálsi, Bjarni á Þorláksstöðum, Guðný í Flekkudal,  og presturinn, séra Gunnar Kristjánsson. Einnig koma við sögu Árni Bergmann rithöfundur og félagar Gunnars í leshring Sr. Kristinn Friðfinnsson, Sr. Gunnþór Ingason, Pétur Gunnarsson rithöfundur, Erlendur Sveinsson kvikmyndagerðarmaður og Ögmundur Jónasson alþingismaður.

Bændurnir taka þátt í samræðunni og gefa vísbendingar með verkum sínum og lífsformi.

  • DAGSKRÁ: Nýjar myndir
  • SÝND: frá 14. október

Kvikmyndir
Engin skoðun á “Liljur vallarins”

Svara færslunni

You must be logged in to post a comment.